Systur og Bræður

Gærur+2

24.05.2009 13:41:01 / evamjoll

change of a plan

Góðir hálsar

þá hefur planið hjá okkur breyst aðeins...
þar sem þátttaka í áætlaða ferð var ekki næg féll hún því miður niður. Því hefur verið ákveðið að í stað þess að gera ekki neitt, að hvetja alla sem vilja og geta að koma í heita pottinn í Abaco og fá sér herðanudd. Þeir sem vilja geta síðan pantað sér eitthvað meira (t.d. ljós) en hringja þá sjálfir og panta. Síðan myndum við fara saman útað borða á eftir.
Varðandi þann sjóð sem við eigum þá hafa komið upp tvær hugmyndir og biðjum við þá sem lesa um að "vóta" hvort þeim lýst betur á:
1) að hver og einn fái greitt út sinn hlut og ræður þá í hvað hann notar hann t.d. nælu eða abaco/dinner dæmið
2) gefa sjóðinn til góðgerðamála

hlökkum til að heyra frá ykkur og hvetjum sem flesta til að boða sig í kósíheit í Abaco

Hér má sjá mynd ad tilbúnum nælum - annarsvegar með höndum og hins vegar án þeirra. - myndina má sjá stærri undir linknum - MYNDASÖFN

» 20 hafa sagt sína skoðun

12.05.2009 21:02:17 / helena

Jæææja =) útskriftarferðin mikla

þá eru vonandi allir búnir að lesa bréfið á blakk... ef ekki þá er bara að drífa sig þangað inn og lesa það =)

En allir að staðfesta í comment fyrir neðan sem ætla með í ferðina og eins að senda Evu Mjöll póst í sambandi við næluna =)

It´s going to be legend- WAIT FOR IT---- dary!! :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.04.2009 22:49:37 / evamjoll

Fyrsta hugmynd að nælu

Jæja elskurnar...

fékk senda frá systur minni í gær fyrstu hugmynd að nælu sem hún vildi bera undir okkur og endilega kommentið hvernig ykkur lýst á. Hér kemur frekar óskýr mynd sem er heldur ekki í réttum hlutföllum en þið getið séð hana betur undir "myndasöfn" hér á vinstri spássíu.


hér erum tvær útfærslur af sömu hugmyndinni. Hugmyndin hér að baki er sú að um er að ræða hálft hjarta umhverfis hjúkkuna sem stendur á hlið. (hugur - hjarta - hönd) Á vinstri myndinni er hún með hendur út (hugur, hjarta, hönd) en ekki á hægri myndinni. Höfuð (hugur - hjarta -hönd) hjúkkunar og hnútur í hári mynda síðan '09 eða útskriftarárið okkar. Við megum ráða stærðinni á nælunni og hver og ein hvort hún vill silfur, gull eða gullhúðaða nælu. Hugmyndin var að búkur hjúkkunar væri kúptur og höfuð hennar einnig úr silfri/gulli. umhverfis höfuðið (núllið) væri síðan gull/silfur snúra til að ítreka núllið og nían og hálf hjartað yrðu jafnframt úr gull/silfur snúru.

endilega tjáið ykkur hvernig ykkur lýst á. Hugmyndin að baki þessu var sú að hér væri um að ræða nælu sem hefði eitthvað táknrænt gildi en væri samt ekki mjög dæmigerð, t.d. með augljósu '09 merki.

varðandi fjarnemana þá sagðist systir mín mjög líklega ráða við að gera fleirri nælur en bara fyrir okkur staðarnema svo að öllum líkindum er þeim velkomið að vera með. Ætlar að svara mér endanlega með það á morgunn. Væri gaman að hafa þær einnig með í þessu - hafi þær áhuga

hlakka til að heyra frá ykkur,
kv Eva semeraðdeyjahúngeturekkibeðiðeftiraðútskrifast!

» 19 hafa sagt sína skoðun

23.04.2009 22:24:04 / evamjoll

útskriftarferð og fleirra

af einhverjum ótrúlegum ástæðum þá mundi ég enn lykilorðið inná þessa síðu eftir langt hlé :)
Endilega kommentið hér fyrir neðan og tjáið ykkur um málefni líðandi stundar, nú eða léttið á hjarta ykkar ef þannig liggur á ykkur!

GANGI YKKUR VEL Á LOKASPRETTINUM!!!!!!!!!!!!!!!

» 11 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 18:32:51 / helena

Útskriftarferð innanlands

Sæl öll sömul :)
Við munum fá tilboð í þrennskonar ferðir innanlands- hestaferð og einhverjar ferðir í kringum Húsavíkur og Mývatns-svæðið (einhversstaðar þar í kring)

Hvernig lýst ykkur á það?
Planið er að fara í þessa ferð á rannsóknardaginn eða daaginn eftir - hvort heldur sem hentar betur :) Okkur vantar að vita hverjir hafa áhuga á þessu bæði hérna á Ak og fyrir sunnan.... Endilega þið stelpur fyrir sunnan að kommenta svo við fáum einn tengilið í Reykjanesbæ :)

við skoðum svo og ræðum þessi tilboð í vikunni sem við verðum í skólanum...
Glæsó- ekki satt ? :)

Kveðja Helena og Heiða


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2009 21:20:58 / sigga

Útskriftarferð

Sæl

Sendi ykkur mail í dag um fyrirhugaða útskriftarferð. Endilega kíkið á það sem fyrst á hann og látið vita sem fyrst um ykkar fyrirætlanir

Adios
Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2008 11:51:41 / sigga

Ferðamálafundur

JÆJA stuðboltar

Fundur í L103 1.apríl (EKKI APRÍLGABB) strax eftir öldrunarhjúkrunartímann, eða kl 11:40 nákvæmlega.

Á dagskrá eru útskriftarferðarmál, fjáröflun ofl......

Hvet alla til að mæta, líka þá sem þykjast ekki ætla með.....þið hafið klárlega aldrei farið til útlanda með mér!!!!

Þetta er langt hádegi, þannig að þið hafið nægan tíma til að eta eftir fundinn.

Sigga-sem er farin til útlanda í huganum

www.transatlantic.is
www.ferd.is
www.urvalutsyn.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 13:19:27 / sigga

TJÚTT

HÍ hjúkkur í heimsókn um helgina

Um helgina þ.e. 7. - 9. mars þá er komið að árlegri skíðaferð HÍ hjúkkna hingað til okkar í nafla norðursins. Ætlum við í heilbrigðisdeild að hylla þær með því að hittast öll á föstudagskvöldinu og skemmta okkur saman. Sýnum þeim hvað er nú gaman hjá okkur hérna á Akureyri. Við fengum nú ekki óskarinn fyrir samstöðu fyrir ekki neitt;).

 

Við ætlum að hittast á efri hæðinni á kaffi Akureyri á morgun föstudags 7. mars kl 21:00. Endilega látið þetta berast svo að felstir mæti nú;0). Tilboð á barnum og bara gaman.

 

Sjáumst!

 

KAUPTHING STYRKIR EIR 

partýljónin í stjórninni


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 14:25:48 / sigga

Fundur

Fundur á mánudagskvöldið í L102

Mánudagskvöldið kl 20:00

Fundarefni: Kjaramál og komandi kjarabarátta

KOMA SVO


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 14:58:56 / sigga

Próftaflan og kjaramál

ARA010328. apríl kl. 9:003 Andrew Brooks 
HLF020330. apríl kl. 9:003 Ingvar Teitsson 
HJF02043. maí kl. 14:004 Þorbjörg Jónsdóttir 
ÖHJ01036. maí kl. 14:003 Kristín Þórarinsdóttir 
HEG01039. maí kl. 14:003 Elísabet Hjörleifsdóttir

 

Þetta lítur svo sem vel út með seinustu 3 prófin allaf heilir 2 daga á milli prófa, En fyrstu tvö prófin, alltof stutt að hafa bara 1 dag fyrir hand og lyf. Væri ekki strax skárra að fá hand og lyf seinkað um einn dag eða víxla hand og lyf við ara?

Hvað segið þið???

Við höfum viku til að skila inn athugasemdum

 

Ætlaði síðan að minna á kjaramálafundinn sem verður á Sólborg á þriðjudaginn. Koma einhverjar kvinnur frá FÍH og tjatta við okkur hjúkrunarfræðinemana. 29.janúar, kl 13:15 í L201

 Þar ætla þær að fara yfir komandi kjarasamninga.

Hvet ykkur öll til að mæta svona ef ykkur langar ekki að standa í röðinni hjá mæðrastyrksnefnd í framtíðinni!!!!!! Og ef það á einhver eftir að skrá sig í FÍH þá er ekki seinna vænna að drífa í því.

 

Vona að verknámið gangi vel hjá öllum

kveðja Sigga 


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 12:31:04 / brynja

Smá tilkynning

Sæl öll sömul Gleðilegt nýtt ár!Við erum tvær úr bekknum sem að hafa mjög mikinn áhuga á því að gera lokaverkefnið sem að hún Árún var að tala um.Okkur vantar hins vegar einhverja 1 – 2 með okkur og vorum því að velta því fyrir okkur hvort það væri ekki einhver til í þetta með okkur.Endilega látið okkur vita annað hvort hérna eða þá ennþá betra að senda okkur e-mail á ha-mailið. Best væri að fá að vita þetta sem fyrst því margar hugmyndir eru í gangi.Kv Nýburarnir í bekknum Brynja og Eyrún

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 14:33:30 / sigga

Baráttumálin

Baráttumálin

 Stal þessu mjög heiðarlega af bloggi 2.ársins, en þær stálu þessu heiðarlega einhversstaðar annarsstaðar ;)

Ungliðadeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

 

\"\"

Sameinaðar stöndum við sundraðar föllum við....er þetta ekki einhvernvegin svona \"0\" Við vorum að ræða launamál í vinnunni og þá var mér bent á þennan spjallþráð inn á www.hjukrun.is :

 Við viljum byrja á því að þakka öllum þeim sem hafa sett sig í samband við unghjukrun@gmail.com kærlega fyrir stuðninginn og áhugann, hann er mikils metinn. Form er að færast á þetta hjá okkur og staðan er nú svona: Á fundi við FÍH 28 nóv. sl var ákveðið að stofna til ungliðadeildar FÍH. Stofnfundur verðu haldinn þann 15 janúar 2008 og munu hjúkrunarfræðingar sem úskrifuðust árið 2000 og síðar fá fundarboð. Hjúkrunarfræðinema bjóðum við einnig sérstaklega velkomna sem og aðra hjúkrunarfræðinga sem áhuga hafa á að miðla dýrmætri reynslu sinni.

FÍH hefur sýnt okkur fyllsta stuðning og munum við fá dygga aðstoð félagsins við að hrinda starfseminni af stað. Mikilvægt er að sem flestir taki virkan þátt í þessu þannig að starfsemi ungliðadeildar taki mið að þörfum ungliða eins og þær eru í raun og veru.

Drög að stefnuyfirlýsingu hafa verið samin og hljóðar svo:
Ungliðadeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vil vera vettvangur fyrir opna umræðu um málefni hjúkrunarfræðinga, efla stéttarvitund ungra hjúkrunarfræðinga og styrkja þá í að hafa áhrif á starfsumhverfi sitt og réttindi. Ungliðadeild FÍH vill styðja unga hjúkrunarfræðinga í fagi sínu fyrstu árin í starfi.

Þessi drög verða tekin til umfjöllunar og kosningar á stofnfundi auk fjölda annarra spennandi málefna.

Við viljum biðja hjúkrunafræðinga utan höfuðborgasvæðisins sérstaklega að setja sig í samband við okkur og gefa sig fram sem tengiliði. Stofnfundurinn verður haldinn með fjarfundarbúnaði og brýnt að ná til allra. Einnig viljum við heyra í öllum þeim sem starfa utan hefðbundinnar deildarhjúkrunar, og hvetja þá til að taka þátt í félagsstarfinu, sjálfum sér og öðrum til gagns og skemmtunar. Við höfum mikinn áhuga á að fá að heyra frá öllum og heyra hvað hjúkrunarfræðingar eru að vinna við fjölbreytt og skemmtileg störf.

Ef þið lumið á hugmyndum að góðum umfjöllunarefnum og ræðumönnum á stofnfundinn, endilega látið vita annaðhvort á spjallrásinni eða með maili á unghjukrun@gmail.com

Hlökkum til að sjá ykkur!
Gunnhildur, Hrefna, JónJökull, Sigurbjörg, Hólmfríður og Guðný

hvað segið þið stelpur eigum við ekki að taka þátt í þessu og sýna hvað í okkur býr? Það sagði ein hjúkka í vinnunni við mig í dag að það væri almennt áhugaleysi á launabaráttunni okkar meðal hjúkrunarfræðinga. Þær nenntu ekki að standa í þessu því þær væru svo margar sem ættu vel launaða eiginmenn sem gætu staðið undir útgjöldum heimilisins......ég verð nú bara að viðurkenna að ég varð gjörsamlega kjaftstopp! Ég hélt að það væri að koma árið 2008 en ekki 1908!!!!!! Eigum við að ræða þetta eitthvað \"0\"

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 00:02:46 / sigga

Í kvöld jólin er´að koma

 Gleðileg jól hjúkkurnar mínar

Vona að þið hafið það rosa gott yfir jólin í faðmi fjölskyldunnar

 

Sjáumst á nýju ári........... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 23:11:14 / evamjoll

talandi um að halda sér unglegri

Hvað segiði stelpur... er ekki sílikon málið þegar við verðum krumpudýr með tóma tepoka??


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.12.2007 14:08:58 / sigga

Próflok

jæja jæja

eru þessi próf ekki alveg að verða búin?  Þá er nú kominn tími á að plana djamm!!!!!!

Veit reyndar ekki alveg hvernig próflokadjamminu verður háttað í ár en ég býð amk fram hús og bús í fyrirhitting á föstudaginn (nema einhver annar vilji endilega halda partý heima hjá sér ;))

Eruði ekki geim?

Sigga nett geðveik á geðhjúkrun

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Myndir
Djamm á Akureyri